Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
29. október 2024
Forseti afhendir verðlaun.

Forseti afhendir Niels Fredrik Dahl, rithöfundi frá Noregi. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024.

Forseti afhendir Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs við hátíðlega athöfn á Parliament hóteli í Reykjavík. Verðlaunin í ár hlýtur Niels Fredrik Dahl frá Noregi fyrir bókina „Fars rygg“. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt frá 1962 fyrir skáldverk sem samin eru á einu af norrænu tungumálunum. Markmiðið með verðlaununum er að vekja áhuga á bókmenntum og tungumálum grannþjóðanna sem og menningarlegri samkennd þeirra.
Í rökstuðningi dómnefndar segir að skáldsaga Dahls sé mögnuð en jafnframt lágstemmd. „Frásögnin teygir sig yfir nokkra áratugi og heimsálfur og hefur órjúfanleg tengsl við sögu stríða og heimsvaldastefnu en varpar um leið ljósi á það hvernig minni, sem einkennist af gloppum og lausum endum, er í raun það eina sem við höfum við að styðjast þegar við reynum að átta okkur á fortíðinni.“ Bókin hefur ekki komið út í íslenskri þýðingu.
Við sömu athöfn voru einnig veitt Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs, Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs, Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs. Auk Niels Fredrik Dahl eru verðlaunahafarnir í ár höfundurinn Jakob Martin Strid, tónskáldið Rune Glerup, arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir og kvikmyndaleikstjórinn Dag Johan Haugerud, ásamt framleiðendunum Yngve Sæther og Hege Hauff Hvattum.
Áður hafði forseti boðið öllum verðlaunahöfum ársins til móttöku á Bessastöðum.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar