CISV Alþjóðlegar sumarbúðir barna
4. apríl 2025
Forseti tekur á móti hópi barna á leið í alþjóðlegar sumarbúðir CISV...

Hópur barna á leið erlendis í alþjóðlegar sumarbúðir CISV kemur í heimsókn til Bessastaða og fær mynd með forseta. Forseti Íslands er verndari CISV á Íslandi.
CISV vinnur að því að stuðla að friði í gegnum vináttu og samstarf ólíkra menningarheima, óháð pólitískum eða trúarlegum skoðunum. Tilgangur samtakanna er að auka réttlæti og stuðla að friði í heiminum með því að veita einstaklingum tækifæri til að búa og starfa með fólki af ólíkum uppruna. CISV á Íslandi sendir 60-80 einstaklinga til þátttöku í hinum ýmsu alþjóðlegu verkefnum CISV ár hvert og um 1000 Íslendingar hafa tekið þátt í starfi félagsins.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
16. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“