Downs-dagurinn
21. mars 2025
Forsetahjón taka á móti pari af mislitum sokkum










Forsetahjón taka á móti fulltrúum Félags áhugafólks um Downs-heilkennið sem færa þeim mislita sokka á alþjóðadegi Downs heilkennisins þann 21. mars. Dagsetningin er táknræn og vísar til þess að Downs heilkennið orsakast af aukalitningi í litningapari 21.
Markmið dagsins er að vekja jákvæða athygli á einstaklingum með Downs heilkenni og hvetja til virkrar þátttöku þeirra í samfélaginu. Hefð er fyrir því að klæðast mislitum sokkum á þessum degi til að fagna fjölbreytileikanum.
Listamennirnir Arna Dís Ólafsdóttir & Lóaboratorium (Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir) hönnuðu í sameiningu ósamstætt sokkapar í tilefni dagsins, en í ár eru „sokkarnir” prentaðir á bolla, á töskur og á boli. Einnig voru útbúin tattú með sokkunum. Varningurinn er seldur til styrktar Félagi áhugafólks um Downs-heilkennið.
Myndasafn frá heimsókn Downs-félagsins á Bessastaði.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar