„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
4. nóvember 2026
Ljósmyndir: Siggi Sig., Þorgeir Baldursson og EFÍ.
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.

Forsetahjón komu akandi að Malarhöfða í gömlum björgunarsveitarbíl.








Upptaka frá opnunarhátíð Iceland Airwaves á Grund er aðgengileg á fréttavef Vísis. Þar má sjá forseta og séra Pétur Guðjónsson bregða á leik fyrir börnin í áheyrendahópnum.
Skoða
Forsetahjón sóttu opnunarviðburð Iceland Airwaves á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Þau tóku einnig á móti Neyðarkalli ársins í höfuðstöðvum Hjálparsveitar skáta í Reykjavík. Um liðna helgi heimsóttu þau jafnframt keppendur á Íslandsmótinu í boccia sem haldið var á Selfossi.
Forseti Íslands er bæði verndari Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og skátahreyfingarinnar og styður við starf þeirra með margvíslegum hætti. Í þessari viku var Neyðarkalli, fjáröflunarátaki Landsbjargar, ýtt úr vör í tuttugasta skipti. Tóku forsetahjón við fyrsta Neyðarkallinum í höfuðstöðvum Hjálparsveitar skáta við Malarhöfða í Reykjavík, en sveitin er ein af fjölmörgum aðildarfélögum Landsbjargar. Að þessu sinni er Neyðarkallinn tileinkaður þeim þúsundum sjálfboðaliða sem unnið hafa að fjáröflun fyrir björgunarsveitir og slysavarnadeildir um allt land undanfarna tvo áratugi.
Forsetahjónum var ekið að Malarhöfða í einni af elstu bifreiðum Landsbjargarflotans, Ford Econoline árgerð 1980. Í framhaldi skoðuðu þau aðstöðu Hjálparsveitar skáta, þar á meðal litríkt safn þeirra tuttugu Neyðarkalla sem framleiddir hafa verið síðan þessi fjáröflunarleið var mótuð. Að heimsókn lokinni sagði forseti alltaf jafnánægjulegt að taka á móti fyrsta Neyðarkalli ársins. „Björgunarsveitarfólkið okkar er ómetanlegur fjársjóður,“ bætti hún við. „Tökum vel á móti þeim næstu daga og sýnum þakklæti okkar í verki.“
Forsetahjón sóttu einnig opnunarviðburð tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves sem fór fram á dvalar- og hjúkunarheimilinu Grund, líkt og undanfarin ár. Í salnum var bæði heimilisfólk á Grund og leikskólabörn úr Tjarnarskóla. Meðal listafólks sem lék þar fyrir gesti voru tónlistarkonan Rakel og hljómsveitin Lón. Forseti flutti einnig stutt ávarp og sagði meðal annars:
„Ég er efins um að nokkur tónlistarhátíð hefjist með þeim hætti sem hér er gert, þar sem yngstu börnin til elstu borgara okkar og fjöldi erlendra gesta koma saman þvert á kynslóðir — og líklega tónlistarsmekk — og njóta tónlistar saman. Ég held að tónlist hafi einstaka töfra og ég finn hvað tónlistaratburðir gera mikið fyrir mig í mínu starfi. … Ég held að fátt stilli samhljóminn og samkenndina í samfélaginu jafnmikið og tónlistin gerir.“
Að ávarpi loknu brá forseti á leik með æskulýðsfulltrúa Grundar, séra Pétri Þorsteinssyni, en það var hans hugmynd að Iceland Airwaves yrði sett í salarkynnum Grundar.
Meðal annarra viðburða í dagbók forsetahjóna var heimsókn á Íslandsmótið í boccia sem Íþróttasamband fatlaðra stóð fyrir á Selfossi um liðna helgi. Þau hittu þar bæði keppendur og skipuleggjendur og fengu líka að spreyta sig í íþróttinni. Forseti hafði orð á því að gleðin, keppnisskapið og samheldnin á mótinu hefðu verið einstök og að þau hjónin hefðu skemmt sér konunglega.
Fleiri fréttir

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?