Eistland
9. september 2024
Forseti tekur á móti nýjum sendiherra.

Piia Mathiesen, nýr sendiherra Eistlands, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Ljósmynd: Una Sighvatsdóttir



Forseti tekur á móti Piiu Mathiesen, nýjum sendiherra Eistlands með aðsetur í Noregi, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um ríka sögu í samskiptum ríkjanna, þar á meðal ötulan stuðning Íslands við endurheimt sjálfstæðis Eistlands á sínum tíma. Þá var rætt um leiðir til að styrkja samstarf landanna enn frekar, meðal annars á sviði grænna lausna í orkuskiptum, nýsköpun í tækniiðnaði og öðrum sviðum viðskipta, en nokkur fjöldi íslenskra fyrirtækja er með starfsstöðvar í Eistlandi. Þá var rætt um öryggis- og varnarmál í alþjóðasamskiptum, meðal annars um stafrænt öryggi þar sem Eistland hefur verið í fararbroddi. Um 320 eistneskir ríkisborgarar eru búsettir á Íslandi.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“