„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“
9. júlí 2026
Ljósmyndir ITU/D. Woldu og vefur SÞ.
Forseti sækir fund ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs.

Forseti á fundi alþjóðlegrar ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs í Genf.


Alls sitja 44 einstaklingar í nýrri alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind til góðs. Hægt er að fræðast um þá og verkefni nefndarinnar á vef hennar.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, ávarpaði í gær Heimsþing um gervigreind til góðs (The AI for Good Global Summit) sem fram fer í Sviss. Þingið, sem skipulagt er af Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU) í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar (SÞ), hófst á þriðjudag og er hluti af Stafrænni viku í Genf. Einnig sótti forseti í gærdag fyrsta fund alþjóðlegrar ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs sem hún hefur tekið sæti í.
Ráðgjafanefndin, sem ITU og SÞ hafa kallað saman, er skipuð fólki úr ólíkum áttum og með fjölbreyttan bakgrunn. Í hópnum eru þjóðarleiðtogar, ráðherrar, stjórnmálafólk og fulltrúar atvinnulífs, alþjóðastofnana og félagasamtaka. Ráðið er undir forystu Paul Kagame forseta Rúanda, Marc Benioff forstjóra Salesforce og Doreen Bogdan-Martin framkvæmdastjóra ITU. Meðal annarra sem sitja í nefndinni eru Alar Karis forseti Eistlands, Brad Smith forstjóri Microsoft, Julie Sweet forstjóri Accenture, tónlistarmaðurinn William Adams (will.i.am), Josephine Teo ráðherra upplýsingamála í Singapúr og Emma Theofelus ráðherra upplýsingamála í Namibíu. Verkefni nefndarinnar er að fjalla um tæknileg, samfélagsleg og efnahagsleg álitamál sem tengjast gervigreind og gera tillögur um stefnumótun á þessu sviði.
Í ávarpi sínu á Heimsþingi um gervigreind til góðs lagði forseti áherslu á að margir aðilar þyrftu að taka höndum saman til að móta umgjörð fyrir þær tækniframfarir sem væru að umbylta lífi einstaklinga og þróun samfélaga. Hún bætti við að brýnt að ungt fólk hefði einnig aðkomu á stefnumótun á þessu sviði. „Ekkert eitt land getur stjórnað þessari tækni upp á sitt einsdæmi. Ekkert eitt fyrirtæki getur aflað sér trausts upp á eigin spýtur. Og það er ekki hægt að ætlast til þess að ein kynslóð þurfi að axli ábyrgð á ákvörðunum sem hún á engan þátt í að móta.”
Fleiri fréttir

25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Austurland
Forsetahjón taka þátt í Bræðslunni og Flugi og fákum.
25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Austurland

24. júlí 2026
Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum
Forseti afhendir Frímanni Sveinssyni viðurkenningu Norðurþings 2026.
24. júlí 2026
Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum

23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland
Forsetahjón heimsækja Akureyri og taka þátt í Landsmóti skáta.
23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland