„Ekki fengið fallegra heimboð“
21. maí 2026
Ljósmyndir: Magnús Hlynur Hreiðarson/RÚV og EFI.
Forsetahjón á ferð um Suðurland.

Forseti ásamt leikskólabörnum Laugalandi.





„Sprenging tók á móti forsetahjónunum“ var fyrirsögn líflegrar fréttar RÚV um ferð forsetahjóna um Rangárþing ytra.
Sjá nánar.
Forseti heimsótti fjóra staði á Suðurlandi ásamt eigimanni sínum Birni Skúlasyni. Tilefni ferðarinnar var afmæli Leikskólans Laugalandi en einnig fóru forsetahjón í Laugalandsskóla, Hjúkrunarheimilið Lund og ferðaþjónustufyrirtækið Hellana á Hellu.
Dagurinn hófst á heimsókn í Leikskólann Laugalandi sem fagnar 30 ára afmæli. Þar tóku Kristín Ósk Ómarsdóttir leikskólastjóri og Guðbjörg Matthíasdóttir aðstoðarleikskólastjóri á móti forsetahjónum. Börnin í skólanum færðu forseta blóm við komuna og sungu nokkur lög. Í kjölfarið svaraði hún spurningum þeirra um forsetaembættið. Loks gróðursetti hún hindberjaplöntur, með aðstoð barna úr elstu deild leikskólans, í gróðurreit sem hlotið hefur nafnið Fræ framtíðarinnar.
Í viðtali við Magnús Hlyn Hreiðarsson fréttamann RÚV sagði forseti um heimsóknina: „Það er náttúrlega svo fallegt veðrið og svo held ég að ég hafi ekki fengið fallegra heimboð bara frá því að ég tók við embætti. Börnin hérna bjuggu síðasta haust til Hölluklúta, sendu mér eitt fallegasta bréf sem ég hef fengið, mynd af sér með klútana, og buðu mér í 30 ára afmæli leikskólans.“
Næsti viðkomustaður var Laugalandsskóli. Þar tók Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri á móti forsetahjónum, ásamt Jóni G. Valgeirssyni sveitarstjóra Rangárþings ytra. Nemendur í grunnskólanum sungu lög fyrir forsetahjón sem snæddu síðan hádegisverð með börnunum og starfsliði skólans.
Eftir hádegi hófst dagskráin á heimsókn í ferðaþjónustufyrirtækið Hellana á Hellu sem er í landi bæjarins Ægissíðu á bökkum Ytri Rangár. Um fimmtán þúsund ferðamenn koma þangað árlega en þetta er í fyrsta sinn sem forsetahjón kynna sér þær merkilegu mannvistir sem þarna er að finna. Ólöf Þórhallsdóttir framkvæmdastjóri, sem er alin upp á Ægissíðu, sagði frá þróun og framtíðaráformum fyrirtækisins og lýsti einnig samstarfi þess við fleiri ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
Síðasti viðkomustaðurinn í Rangárþingi ytra var hjúkrunarheimilið Lundur á Hellu. Þar tók Lilja Einarsdóttir hjúkrunarforstjóri á móti forsetahjónum og kynnti fyrir þeim starfsemina. Í kjölfarið spjölluðu þau við heimilisfólk og þáðu kaffiveitingar.
Fleiri fréttir

10. ágúst 2026
Nýr sendiherra Bandaríkjanna
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. William H. Long.
10. ágúst 2026
Nýr sendiherra Bandaríkjanna

25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Austurland
Forsetahjón taka þátt í Bræðslunni og Flugi og fákum.
25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Austurland

24. júlí 2026
Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum
Forseti afhendir Frímanni Sveinssyni viðurkenningu Norðurþings 2026.
24. júlí 2026
Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum