Embættistaka forseta Íslands
1. ágúst 2024
Embættistaka Höllu Tómasdóttur fer fram 1. ágúst.

Embættistaka Höllu Tómasdóttur, sem kjörin var forseti Íslands þann 1. júní 2024, fer fram í Dómkirkjunni og Alþingishúsinu í dag, fimmtudaginn 1. ágúst, og hefst dagskrá klukkan 15:30. Ríkisútvarpið verður með beina sjónvarpsútsendingu frá athöfninni í kirkju og þinghúsi.
Almenningur er boðinn velkominn á Austurvöll til að fylgjast með athöfninni og fagna nýjum forseta. Þar verða settir upp skjáir svo þau sem þar eru stödd geti fylgst með því sem fram fer. Að loknu drengskaparheiti minnist forseti Íslands fósturjarðarinnar af svölum þinghússins.
Þá verður Smiðjan, nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis, í fyrsta sinn nýtt að lokinni embættistöku forseta Íslands fyrir gesti athafnarinnar. Smiðjan var tekin í notkun um síðustu áramót en við fyrri embættistökur hefur móttakan farið fram í Alþingishúsinu.
Fleiri fréttir

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“