Endurheimt lífsleikninnar
24. september 2025
Forseti heimsækir meðferðarheimilið Krísuvík.

Forseti heimsótti meðferðarheimili Krýsuvíkursamtakanna og kynnti sér starfsemina þar. Samtökin voru stofnuð árið 1986 og hafa rekið meðferðarheimili í Krýsuvík frá 1989. Meðferðin, sem er að lágmarki sex mánuðir, byggist á tólf spora kerfinu en inn í hana fléttast einnig nám, félagslegur stuðningur og áfallahjálp. Markmiðið er að skjólstæðingar endurheimti lífsleikni sína fjarri skarkala þéttbýlisins og í tengslum við kraftmikla náttúru. Meðal þeirra sem tóku á móti forseta voru Elías Guðmundsson framkvæmdastjóri, Dagný Gísladóttir sem situr í stjórn samtakanna og Ævar Österby áfallaráðgjafi.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar