Eyrarrósin
15. maí 2025
Eiginmaður forseta flytur ávarp og afhendir verðlaun.






Eiginmaður forseta, Björn Skúlason, flytur ávarp og afhendir Eyrarrósina við hátíðlega athöfn á Siglufirði. Eyrarrósin er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.
Maki forseta er verndari Eyrarrósarinnar sem er nú afhent í 20. sinn en á undan Birni fóru þær Eliza Reid og Dorritt Mousiaeff með verndarahlutverkið. Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Icelandair og Listahátíð í Reykjavík.
Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði verðlaunuð
Að þessu sinni hlaut Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði viðurkenninguna. Sköpunarmiðstöðin er menningarsetur og vettvangur fyrir fjölbreytta lista-, menningar- og nýsköpunarstarfsemi. Í umsögn dómnefndar segir að Sköpunarmiðstöðin auðgi menningarlíf svæðisins svo um munar sem náttúrulegur vettvangur fyrir lifandi viðburði, bæði skipulagða og sjálfsprottna. Hún eykur þátttöku og aðgengi íbúa að listum og menningu og eflir menningarlæsi.
Eftir 15 ára starf hefur Sköpunarmiðstöðin nú verið viðurkennd sem fjórða menningarsetur Austurlands, ásamt Sláturhúsinu, Skaftfelli og Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Þrír sprotar fá hvatningu
Við sama tilefni voru Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar veitt í þriðja sinn, til þriggja nýrra menningarverkefna sem þykja hafa listrænan slagkraft, jákvæð áhrif á nærsamfélagið og burði til þess að festa sig í sessi. Verkefnin eru:
Gletta, sýningarrými sem leggur áherslu á samtímamyndlist á Borgarfirði eystra.
Afhverju Ekki, þverfaglegt vinnustofu- og rannsóknarsetur, einnig nefnt „The Absolutely Everything Studio“, sem stofnað var árið 2024 á Breiðanesi á Laugum í Þingeyjarsveit.
Tankarnir á Raufarhöfn, lýsistankar sem stóðu tómir frá 2006 en hafa nú, að ósk íbúa, fengið nýtt hlutverk og breytast í listatanka.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“