Fjáröflun Landsbjargar
5. nóvember 2025
Forsetahjón taka á móti Neyðarkallinum.

Forsetahjón voru viðstödd við Elliðaár í Reykjavík þegar sölu Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Neyðarkallinum 2025 var ýtt úr vör. Að þessu sinni er Neyðarkallinn straumvatnsbjörgunarmaður, til minningar um Sigurð Kristófer McQuillan Óskarsson sem lést á björgunaræfingu á liðnu ári. Markmiðið er einnig að vekja athygli á að árlega drukkna álíka margir hér á landi og láta lífið í umferðarslysum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi og er forseti verndari þeirra. Þetta er í 20. skipti sem samtökin bjóða almenningi og fyrirtækjum að styðja við starfið með þessum hætti. Forseti sagði Landsbjörgu vera eina mikilvægustu sjálfboðaliðahreyfingu landsins, þegar hún tók á móti fyrsta Neyðarkallinum í Elliðaárdal. Hvatti hún landsmenn til að taka vel á móti sölufólki Landsbjargar næstu daga.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar