Fjölbreytt og framsækið skólastarf
9. janúar 2026
Bjarni Þór Georgsson & EFÍ
Forsetahjón heimsækja þrjá skóla í Eyjum.

Forsetahjón ásamt leikskólabörnum í Kirkjugerði. Ljósmynd: EFÍ.



Á öðrum degi opinberrar heimsóknar forseta til Vestmannaeyja heimsóttu þau meðal annars leikskóla, grunnskóla og framhaldsskólann í bænum. Um hádegið sátu þau síðan hádegisverðarfund í boði bæjarstjórnar í Ráðhúsinu.
Dagskráin í dag hófst klukkan 9 á heimsókn í leikskólann Kirkjugerði. Úti á skólalóðinni tók Eyja Bryngeirsdóttir leikskólastjóri og börn í grímubúningum á móti forsetahjónum og fylgdarliði. Gengið var þessu næst um skólahúsið og var starfsemin kynnt fyrir gestum, þar með talið leiðir sem miða að því að auka lýðræði í skólastarfinu. Heimsókninni lauk á því að börn af elstu deildinni sungu tvö lög.
Næst var farið í Framhaldsskóla Vestmannaeyja sem hefur á undanförnum árum markað sér sterka stöðu í kennslu málm- og vélstjórnargreina. Þar tók Helga Kristín Kolbeins skólameistari á móti forseta sem ávarpaði nemendur á sal og ræddi þar meðal annars um verkefnið ,,Riddarar kærleikans”. Í kjölfarið fór fram kynning á verknáminu í skólanum sem hlaut nýlega Íslensku menntaverðlaunin.
Laust fyrir hádegi heimsóttu forsetahjón síðan Grunnskóla Vestmannaeyja - Barnaskólann á Skólavegi. Skólastjórnendur tóku á móti forsetahjónum og fylgdarliði framan við skólann en þar höfðu nemendur með íslenska fána einnig raðað sér upp. Þegar inn var komið kynnti Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Grunnaskóla Vestmannaeyja - Hamarsskóla verðlaunaverkefnið ,,Kveikjum neistann” sem hefur mótað skólastarfið á liðnum árum og vakið verðskuldaða athygli. Að því loknu var fimmti bekkur heimsóttur en hann hefur verið að vinna að áhugaverðu verkefni sem tengist sögu forsetaembættisins.
Í hádeginu var forsetahjónum og fylgdarliði boðið til hádegisverðarfundar í Ráðhúsi Vestmannaeyjabæjar ásamt bæjarstjórn og bæjarritara. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri kynnti helstu áherslur og áskoranir í rekstri bæjarins en eftir það var almenn umræða um viðfangsefni, áskoranir og framtíðarsýn bæjarstjórnar.
Fleiri myndir frá opinberri heimsókn forsetahjóna til Vestmannaeyja eru hér á vef embættisins.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“