Fjölbreyttir viðkomustaðir á Austurey og Borðey
24. júní 2026
Ljósmyndir: Bjarni Árting Rubeksen.
Annar dagur opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja.

Forseti og lögmaður ásamt Hákuni Djurhuus, forstjóri SEV og stjórnarformanni, Haraldi S. Hammer.





„Mér finnst ég kominn heim þegar ég er í Færeyjum,“ sagði forseti í viðtali við fréttamann Kringvarp Føroya. Fjallað var um heimsókn forsetahjóna í fyrstu frétt færeyska sjónvarpsins á mánudagskvöldið.
Sjá nánar.
Á öðrum degi opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja héldu þau ásamt lögmanni Færeyja, Beini Johannesen, og eiginkonu hans, Helenu Johannesen, frá Straumey til Austureyjar og Borðeyjar.
Dagskráin hófst á heimsókn í vindorkuver SEV (rafmagnsveitu Færeyja) í Húshaga. Næst voru Austueyjargöngin skoðuð en þau tengja Straumey við Austurey. Þetta eru ein lengstu bílagöng heims undir sjó, ríflega 11 kílómetrar á lengd.
Þá voru heimsótt MEST skipasmíðastöðin í Skála og ný og glæsileg sundlaug í Runavík sem fengið hefur nafnið Bylgan. Næsti viðkomustaður voru höfuðstöðvar Bakkafrost, sem er eitt stærsta laxeldisfyrirtæki heims. Að því loknu sátu forsetahjón, lögmannshjón og fylgdarlið þeirra hádegisverð í boði bæjarstjórnarinnar í Runavík.
Eftir hádegi héldu forsetahjón og lögmannshjón til Klaksvíkur á Borðey en þar fór fram viðskiptaþing íslenskra og færeyskra fyrirtækja. Skipuleggjandi var Viðskiptaráð Klaksvíkur en meðal þátttakenda var 20 manna viðskiptasendinefnd frá Íslandi sem fylgir forseta til Færeyja.
Forsetahjón og lögmannshjón heimsóttu síðdegis vinnustofu listamannsins Edwards Fuglø sem fæst meðal annars við myndlist, höggmyndalist og skáldskap. Þaðan réru forseta- og lögmannshjónin, með fulltingi félaga úr Róðrarklúbbi Klaksvíkur, inn í höfnina í Klakksvík. Klúbburinn er þar með aðstöðu í nýlegri byggingu sem hönnuð var af Ósbirni Jacobsen.
Síðasti viðkomustaður dagsins var hússtjórnarskólinn Rótin sem leggur áherslu á þjóðlega matargerð, handverk og sjálfbærni. Dagskránni lauk þar í skólanum á kvöldverði í boði bæjarstjórnar Klaksvíkur.
Í dag, á lokadegi opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja, skoða þau meðal annars nýsköpunar- og frumkvöðlamiðstöð Þórshafnar og Fróðskaparsetrið sem er háskóli Færeyinga. Heimsókninni lýkur með gagnkvæmnismóttöku í Norræna húsinu í Þórhöfn.
Fleiri fréttir

22. ágúst 2026
Fjárfest í menntun, menningu og fólki
Forsetahjón og opinber sendinefnd kynna sér eistneska nýsköpun.
22. ágúst 2026
Fjárfest í menntun, menningu og fólki

21. ágúst 2026
Kveðjustund á Íslandstorgi
Lokadagur ríkisheimsóknar til Eistlands.
21. ágúst 2026
Kveðjustund á Íslandstorgi

20. ágúst 2026
Hátíðisdagur í Tallinn
Annar dagur ríkisheimsóknar til Eistlands.
20. ágúst 2026
Hátíðisdagur í Tallinn