Forsætisráðherra Japans
27. maí 2025
Forseti á fund með Shigeru Ishiba.






Forseti á fund með Shigeru Ishiba, forsætisráðherra Japans, í Tókýó. Fundurinn er liður í heimsókn forsetahjóna til Japans í tilefni af heimssýningu Expo 2025 sem fram fer í Osaka.
Tekið var á móti forseta með viðhöfn í forsætisráðuneytinu þar sem þjóðsöngvar beggja landa voru leiknir. Þá tók við tvíhliða fundur þar sem rætt var um farsæl samskipti ríkjanna frá því stofnað var til opinbers stjórnmálasambands árið 1956. Forseti lagði áherslu á jafnréttismál á fundinum. Þá var rætt um möguleika til eflingar á viðskiptasambandi Íslands og Japans.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar