Forsetahjón á Þjóðhátíð
2. ágúst 2024
Forsetahjón eru viðstödd setningarathöfn Þjóðhátíðar.





Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, heimsækja Vestmannaeyjar og taka þar þátt í hátíðahöldum á Þjóðhátíð á fyrsta degi forseta í embætti.
Þjóðhátíð í Eyjum fagnar 150 ára afmæli í ár. Hátíðin á rætur sínar að rekja til hátíðahalda sem efnt var til um landið allt á þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar þann 2. ágúst 1874. Frá árinu 1916 hefur hún verið haldin árlega í Vestmannaeyjum í ágústmánuði. Hefð er fyrir því að þar komi kynslóðir saman, ungir sem aldnir, og geri sér glaðan dag.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, tók á móti forsetahjónum ásamt fulltrúum þjóðhátíðarnefndar og ÍBV og leiddi þau um hátíðarsvæðið í Herjólfsdal. Þar voru forsetahjón viðstödd setningarathöfn hátíðahaldanna auk þess sem þau heimsóttu hvítu tjöldin og ræddu við heimamenn og aðra hátíðargesti.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar