Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
27. ágúst 2026
Ljósmynd: EFÍ:
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.

Forseti og Ruslan Stefanchuk, forseti þjóðþings Úkraínu, í bókhlöðunni á Bessastöðum.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands fundaði með Ruslan Stefanchuk, forseta þjóðþings Úkraínu, á Bessastöðum.
Fundurinn er hluti af opinberri heimsókn Stefanchuks og er þetta fyrsta opinbera heimsókn þingforseta Úkraínu til Íslands frá því að landið lýsti yfir sjálfstæði fyrir 35 árum. Stefanchuk hefur verið þingforseti frá árinu 2021 og leiddi kosningabaráttu Volodymyrs Zelenskys Úkraínuforseta tveimur árum fyrr.
Á fundinum ræddu forseti og Stefanchuk vináttu og samstarf þjóðanna og mikilvægi þess að standa vörð um lýðræði, frið og frelsi. Forseti lagði áherslu á að Íslandi stæði þétt við bakið á úkraínsku þjóðinni og sagðist vona að réttlátur og varanlegur friður næðist sem allra fyrst.
Stefanchuk átti einnig fundi með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og var jafnframt sérstakur gestur á árlegum fundi þingforseta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Smiðju Alþingis.
Fleiri fréttir

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“