Frændgarður í Vesturheimi
18. ágúst 2025
Forseti tekur á móti gestum frá Bandaríkjunum og Kanada.

Forseti tók á móti hópi fólks frá Kanada og Bandaríkjunum sem á ættir að rekja til Íslands og er hingað kominn til að fræðast um sögu landsins og hitta ættingja. Dagskrá þeirra hér er skipulögð undir merkju svonefndra Snorra-verkefna (The Snorri Programs) sem miða að því að styrkja tengsl milli Íslendinga og afkomenda íslenskra innflytjenda til Norður-Ameríku. Í ljós kom að tveir gestanna gátu rakið saman ættir sínar og ætt forseta. Meðal annars sem bar á góma var nýafstaðin heimsókn forsetahjóna til Winnipeg og þátttaka þeirra í Íslendingadeginum í Gimli.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar