„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“
11. nóvember 2026
Ljósmyndir: Mummí Lú.
Íslensku menntaverðlaunin afhent á Bessastöðum.

Forseti ásamt fulltrúum Fjölbrautaskólans í Breiðholti.




Nánari upplýsingar um verðlaunahafa og tilnefnd verkefni árið 2026 eru aðgengilegar á vef Samtaka áhugafólks um skólaþróun.
Sjá nánar.
Íslensku menntaverðlaunin 2026 voru afhent á Bessastöðum. Líkt og undanfarin ár var dagskráin tekin upp og sýnt frá henni á RÚV. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og er öllum frjálst að tilnefna til þeirra ár hvert.
Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur hlaut Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Viðurkenningu sem framúrskarandi kennari fékk Sandra Ómarsdóttir en hún kennir sviðslistir í Seljaskóla í Reykjavík. Söngvavor, sem er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla, fékk viðurkenningu sem framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- eða verkmenntun hlaut Verkmenntaskólinn á Akureyri fyrir sjálfbæra kennslustofu. Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna hlaut Opni leikskóli MEMMM.
Forseti flutti ávarp í upphafi athafnarinnar og sagði meðal annars:
„Samfélagsmiðlar hafa gjörbreytt því hvernig við eigum samskipti, verjum tíma okkar og upplifum okkur sjálf og aðra. Nú er gervigreindin líka farin að breyta því hvernig við lærum, störfum og lifum. Þessar öru breytingar fela í sér mikil tækifæri, en vekja jafnframt mikilvægar spurningar um líðan barna og ungmenna, félagsleg tengsl, athygli og þroska – og hvernig við tryggjum að öll fái tækifæri til að blómstra og styrkja samfélagið okkar.
Hvað þurfa börnin okkar raunverulega að læra til að takast á við framtíð sem ekkert okkar getur séð fyrir? Hvernig eflum við ekki aðeins þekkingu unga fólksins heldur líka sköpunarkraft, gagnrýna hugsun, félagsfærni, sjálfstraust og siðferðilega dómgreind? Og hvernig tryggjum við að hver einasti nemandi fái tækifæri til að þroska hæfileika sína, á eigin forsendum?
Mér finnst mikilvægt að umræðan um menntamál snúist um annað og meira en ólíkar aðferðir við námsmat eða skipulag skólastarfs. Slíkar umræður eiga sannarlega rétt á sér, en við megum ekki missa sjónar á stóru myndinni. Við þurfum ekki aðeins að spyrja hvernig við mælum árangur í menntun, heldur líka hvað við teljum raunverulegan árangur vera.“
Í lok athafnarinnar sagði forseti ennfremur:
„Mig langar til að enda mál mitt á einni ósk: Það er ósk mín að við gerum menntun og framtíð unga fólksins að einu mikilvægasta sameiginlega verkefni þjóðarinnar.
Í Samtalinu sem fram fór um allt land í október kom skýrt fram að menntun, gervigreind og samfélagsmiðlar eru meðal þeirra málefna sem fólk telur brýnast að við tökumst á við - og ekki hvert í sínu horni, heldur með heildstæðum hætti. Þetta eru ekki þrjú aðskilin viðfangsefni. Þau fléttast saman og hafa djúpstæð áhrif á það hvernig börnin okkar læra, þroskast, tengjast öðrum og öðlast trú á framtíð sína.
Þess vegna þurfum við að ýta undir víðtækara samtal um menntun og skólamál, samtal þar sem stjórnvöld, aðilar atvinnulífsins, kennarar, skólastjórnendur, foreldrar og ekki síst nemendurnir sjálfir tala saman. Við þurfum að spyrja hvaða menntun við viljum bjóða næstu kynslóðum upp á, í heimi sem breytist hraðar en nokkru sinni fyrr. Og við þurfum líka að hafa hugrekki til að hlusta, læra hvert af öðru og finna nýjar leiðir til að ná sígildum markmiðum.“
Að Íslensku menntaverðlaununum standa, ásamt embætti forseta Íslands, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, innviðaráðuneytið, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Samtök iðnaðarins.
Útsending frá athöfninni á Bessastöðum er aðgengileg á vef RÚV.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“
Forsetahjón sækja 150 ára afmælishátíð Blönduóss.
7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“

6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“
Forseti afhendir heiðursviðurkenningu fagráðs gegn einelti.
6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“