Framtíðaraðstaða Náttúruminjasafns
16. september 2025
Forseti heimsækir Náttúruhúsið í Nesi.

Á Degi íslenskrar náttúru heimsótti forseti Náttúruhúsið í Nesi, framtíðaraðstöðu Náttúruminjasafns Íslands (NMSÍ), við Safnatröð 5 á Seltjarnarnesi. Meginþema væntanlegrar sýningar þar verður hafið, með áherslu á líffræðilega fjölbreytni, vistfræði, loftlagsvá og fleiri þætti. Meðal þeirra sem tóku á móti forseta og sýndu henni húsið voru Ragnhildur Guðmundsdóttir, settur forstöðumaður NMSÍ, og Anna Katrín Guðmundsdóttir, sýninga- og verkefnisstjóri NMSÍ. Forseti skoðaði við sama tækifæri Nesstofu en þar er fyrirhuguð sýning tengd Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar. Sýningin er samstarfsverkefni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands, Þjóðminjasafns Íslands og NMSÍ.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar