„Framtíðin kallar á þekkingu ykkar, hugrekki og útsjónarsemi“
23. apríl 2026
Ljósmynd. Vibeke Thoresen.
Forseti flytur setningarávarp á Skeifudeginum.

Forseti flytur setningarávarp sitt á Skeifudeginum 2026.

Forseti flutti setningarávarp á Skeifudeginum sem fram fór í Borgarfirði á sumardaginn fyrsta. Dagurinn, sem er einn af hápunktunum í skólastarfi Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) á Hvanneyri, hefur verið haldinn hátíðlegur frá árinu 1957.
Dagskráin hófst á Mið-Fossum í Andakíl með fánareið. Að loknu opnunarávarpi Eyjólfs Guðmundssonar deildarforseta LBHÍ og setningarávarpi forseta Íslands var fjölbreytt dagskrá þar sem nemendur sýndu afrakstur af námi vetrarins á sviði reiðmennsku og tamninga. Í kjölfarið voru nemendum veitt verðlaun og heiðursmerki. Forseti Íslands afhenti Guðrúnu Tinnu Rúnarsdóttur Gunnarsbikarinn sem gefinn var af Bændasamtökum Íslands til minningar um Gunnar Bjarnason ráðunaut. Hann er veittur þeim nemanda sem hlýtur hæstu einkunn í fjórgangi.
Í ávarpi sínu sagði forseti meðal annars: „Landbúnaðurinn hérlendis hefur að ýmsu leyti einstaka stöðu. Gæði landsins og loftlagsins, gott aðgengi að endurnýjanlegri orku og sterk þekkingarhefð skapa okkur Íslendingum góð tækifæri til að vera í fremstu röð í sjálfbærri matvælaframleiðslu. Hér á Hvanneyri eruð þið nemendur ekki aðeins að læra hvernig hlutirnir hafa verið gerðir heldur einnig að leita leiða til að gera þá á nýjan hátt. Tækifærin leynast víða, framtíðin kallar á þekkingu ykkar, hugrekki og útsjónarsemi til að gera enn betur en fyrri kynslóðir.“
Unnt er að lesa setningarávarp forseta í heild hér á vefnum.
Meðal viðurkenninga sem veitt eru á Skeifudeginum eru Gunnarsbikarinn, Morgunblaðsskeifan, Framfaraverðlaun Reynis og Eiðfaxabikarinn.
Sjá nánar um verðlaunahafa á vef LBHÍ.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“