„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
2. október 2026
Ljósmyndir: Ásdís Birgisdóttir (MH), Alex Snær (Borgarholtsskóli), Trausti Þorgeirsson (MR).
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.

Forseti í samtali við nemendur á göngum Borgarholtsskóla í gær.






Skráning og frekari upplýsingar um verkefnið Samtal eru á vefnum talasaman.is.
Sjá nánar.
Forseti hefur síðustu daga heimsótt þrjá framhaldsskóla sem eiga stórafmæli um þessar mundir. Um liðna helgi fagnaði Menntaskólinn við Hamrahlíð 60 ára afmæli með fjölbreyttri dagskrá sem stóð frá morgni til kvölds og skoðaði forseti skólann þá í fylgd skólameistara og nemenda. Í gær buðu Borgarholtsskóli og Menntaskólinn í Reykjavík (MR) svo nemendum og velunnurum sínum að fagna með sér stórum tímamótum. Forseti flutti ávarp í báðum skólum og ræddi þar um hvaða menntun og reynsla væru gott veganesti fyrir ungt fólk inn í framtíðina.
Borgarholtsskóli, sem fagnar nú 30 ára afmæli, skipulagði afmælisdagskrá á sal skólans við Mosaveg í Grafarvogi. Í ávarpi sínu þar ræddi forseti um fjölbreytileika námsins í skólanum, þar sem hægt er að leggja stund á bóknám, iðnnám, íþróttir og listir. Hún sagði síðan:
„Enginn veit nákvæmlega hvaða störfum þorri fólks mun sinna eftir tíu eða tuttugu ár. Gervigreind og önnur tækni er að breyta ótrúlega mörgu á þessu sviði og þær breytingar eru hraðar. En ég er nokkuð viss um eitt: Framtíðin mun ekki bara þurfa fólk sem kann á tæknina. Hún mun þurfa á fjölhæfu fólki að halda, sem getur hugsað sjálfstætt, skapað með höndunum, unnið og haft samkennd með öðrum, tekið ábyrgð á eigin lífi og mótað samfélagið. Og kannski þarf framtíðin sérstaklega á því fólki að halda sem kann að hlusta.”
Menntaskólinn í Reykjavík fagnar um þessar mundir 180 ára afmæli og skipulagði af því tilefni dagskrá utan við gamla skólahúsið við Lækjargötu. Í ávarpi sínu ræddi forseti einnig um væntanleg áhrif gervigreindar á vinnumarkað og samfélag. Þá sagði hún meðal annars:
„Hér hafa kynslóðir komið og farið. Heimurinn gjörbreyst. En hver kynslóð hefur tekið við einhverju frá þeirri sem á undan kom – og síðan bætt einhverju við sjálf. Svo skilaboð mín til ykkar MR-inga, á öllum aldri, en sérstaklega unga fólksins, eru einföld: Takið þátt. Verið forvitin. Ræktið vináttuna. Talið við fólk sem er ekki alveg eins og þið. Og hlustið – ekki síst þegar þið eruð ósammála.”
Í báðum skólum hvatti hún nemendur til þátttöku í verkefninu Samtali, sem fram fer í framhaldsskólum og víðar um land allt 10. október. Þar er almenningi á öllum aldri boðið að koma saman til að ræða spurninguna: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ Um þetta verkefni sagði forseti meðal annars:
„Þið þurfið ekki að vera með öll svörin til að taka þátt í Samtalinu með okkur 10. október. Raunar hef ég sífellt minni trú á fólki sem telur sig vera með öll svörin. Ég hef miklu meiri trú á fólki sem er forvitið. Fólki sem spyr góðra spurninga. Fólki sem getur sagt: Ég veit það ekki – segðu mér meira. Það er oft á þeim punkti sem gott samtal hefst.“
Forseti ræddi einnig um verkefnið Samtal við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttamann Sjónvarpsins. Hluti viðtalsins birtist í kvöldfréttum í gær en viðtalið í heild er aðgengilegt á ruv.is.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

1. október 2026
„Verið með, takið þátt, spyrjið spurninga“
Forseti flytur opnunarávarp á málþingi Forvarnardagsins.
1. október 2026
„Verið með, takið þátt, spyrjið spurninga“

29. september 2026
Nýr sendiherra Bretlands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi fr. Jane Stevens.
29. september 2026
Nýr sendiherra Bretlands

29. september 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
29. september 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“