Fundur með Bretakonungi
19. nóvember 2025
Forseti fer í vinnuferð til Bretlands.

Buckingham-höll í Lundúnum. Ljósmynd: Breska konungsembættið.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, fer í vinnuferð til Bretlands dagana 19.–21. nóvember 2025. Tilefni ferðarinnar er einkafundur forseta með Karli 3. Bretakonungi í Buckingham-höll, fimmtudaginn 20. nóvember.
Í ferðinni mun forseti einnig kynna sér miðstöðina Sustainable Ventures sem styður við sprotafyrirtæki sem vinna að sjálfbærni og loftslagslausnum. Forseti heimsækir auk þess tvo háskóla. Fyrri heimsóknin er í King‘s College þar sem hún ræðir við Juliu Gillard, fv. forsætisráðherra Ástralíu, m.a. um leiðtogahæfni, jafnréttismál og loftslagslausnir. Seinni háskólaheimsóknin er í London Business School þar sem forseti ræðir við Costas Markides, prófessor í stefnumótun og nýsköpun, um velsældarhagkerfi og áherslur leiðtoga á umbrotatímum.
Í heimsókninni sækir forseti líka sendiráð Íslands heim og hittir þar Íslendinga búsetta í Bretlandi. Á lokadegi heimsóknarinnar lítur hún við í útibúi 66°Norður við Regent Street og heimsækir veitingastaðinn „Churchill‘s Fish & Chips“ í Uxbridge, í vesturhluta Lundúna.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar