Fyrsta opinbera heimsókn innanlands
10. mars 2025
Forsetahjón fara í sína fyrstu opinberu heimsókn innanlands.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, fara í opinbera heimsókn til Hornafjarðar dagana 12.–13. mars. Þar tekur bæjarstjórn á móti forsetahjónum og kynnir þeim mannlífið og margvíslega uppbyggingu á svæðinu. Er þetta fyrsta opinbera heimsókn forsetahjónanna innanlands.
Hornafjörður er öflugt og vaxandi samfélag umlukið stórbrotinni náttúru við rætur Vatnajökuls. Forsetahjón munu dvelja á Höfn en einnig ferðast um Suðursveit og Öræfi. Á fyrri degi heimsóknar, á miðvikudag, heimsækja forsetahjón helstu stofnanir og fyrirtæki í þéttbýlinu á Höfn í Hornafirði. Fyrir hádegi er Grunnskóli Hornafjarðar heimsóttur, einnig leikskólinn Sjónarhóll og loks hjúkrunarheimilið Skjólgarður. Auk þess er farin vettvangsferð um nýja hjúkrunarheimilið sem tekið verður í notkun í sumar. Forsetahjón snæða síðan hádegisverð á Ekru með félagsmönnum í Félagi eldri Hornfirðinga.
Eftir hádegi á miðvikudag kynna forsetahjón sér atvinnu- og menningarlíf á Höfn. Þau heimsækja sjávarútvegsfyrirtækið Skinney – Þinganes hf. og brugghúsið Heppu við höfnina. Því næst fá þau kynningu á kraftmiklu starfi Björgunarfélags Hornafjarðar og mikilli uppbyggingu sem felst m.a. í kaupum á nýju björgunarskipi, framkvæmdum við nýja björgunarmiðstöð og smíði á öflugasta björgunarjeppa landsins sem tekinn var í notkun í haust.
Þaðan fara forsetahjón í hið fornfræga samkomuhús Sindrabæ sem verið er að endurnýja sem menningarmiðstöð. Þá heimsækja þau Svavarssafn, listasafn Svavars Guðnasonar og loks þekkingarsetrið Nýheima en þar er suðupottur stofnana sem starfa á sviði menntunar, menningar, nýsköpunar og rannsókna á Suðausturlandi. Að lokinni kynningu á starfseminni þar tekur við kaffisamsæti þar sem öllum íbúum sveitarfélagsins er boðið að koma og hitta forsetahjón. Kvenfélagið Vaka annast veitingar og nemendur Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu bjóða upp á tónlistaratriði. Um kvöldið býður bæjarstjórnin forsetahjónum til hátíðarkvöldverðar á veitingastaðnum Pakkhúsinu.
Á öðrum degi heimsóknarinnar er farið í dreifbýli sveitarfélagsins. Dagurinn hefst við Hoffell þar sem forsetahjón fá kynningu á uppbyggingaráformum Bláa lónsins. Þaðan er haldið í kúabúið Flatey á Mýrum auk þess sem Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit er heimsótt. Þá liggur leið að Jökulsárlóni þar sem rætt er við landverði um starf þeirra í Vatnajökulsþjóðgarði.
Íbúum á Mýrum og í Suðursveit er síðan boðið að snæða hádegisverð með forsetahjónum að Hótel Jökulsárlóni. Eftir hádegi liggur leiðin að Hofgarði í Öræfum þar sem rekinn er fámennasti grunn- og leikskóli landsins. Opinberri heimsókn forsetahjóna lýkur í Hofgarði þar sem efnt verður til kaffisamsætis með íbúum Öræfasveitar áður en ekið er aftur suður.
Sjá einnig fréttatilkynningu.
Fleiri fréttir

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“

2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.
2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“