Fyrsta skóflustungan tekin í Hamborg
12. ágúst 2025
Forseti sækir Fljótsdalshrepp heim.







Forseti varði deginum í Fljótsdalshreppi í boði sveitastjórnar. Hún kynnti sér fyrir hádegi starfsemi tveggja sprotafyrirtækja: Sauðagulls, sem sérhæfir sig í matvælaframleiðslu úr íslenskri sauðamjólk, og Skógarafurða, sem er leiðandi í vinnslu á íslenskum skógi. Einnig hitti forseti ferðaþjónustuaðila í Snæfellsstofu í Vatnajökulsþjóðargarði og við Hengifoss. Eftir hádegisverð, sem forseti snæddi með sveitarstjórninni á Fljótsdalsgrund, tók hún skóflustungu að fyrsta húsinu í nýjum byggðakjarna á jörðinni Hamborg. Hún flutti stutt ávarp af því tilefni og sagði meðal annars. „Á tímum þar sem mikið er rætt um fækkun fólks og starfa á landsbyggðinni er einkar ánægjulegt að sækja heim samfélög sem horfa til framtíðar og sjá möguleika í breytingum og framþróun.“ Forseti heimsótti líka Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri, Fljótsdalsstöð og Óbyggðasetrið í Norðurdal.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar