Garðyrkjuverðlaun ársins
24. apríl 2025
Forseti afhendir Garðyrkjuverðlaun ársins í Garðyrkjuskólanum á Reyk...








Forseti afhendir Garðyrkjuverðlaun ársins í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi á sumardaginn fyrsta.
Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar hlutu hjónin Óli Finnsson og Inga Sigríður Snorradóttir sem reka garðyrkjustöðina Heiðmörk í Laugarási.
Gróðurhúsið Bjarkarás sem rekið er af Ás styrktarfélagi var verðlaunað sem verknámsstaður garðyrkjunnar. Ræktunarstjóri og eigandi er Svava Rafnsdóttir garðyrkjufræðingur. Þá var Ólafur Sturla Njálsson, garðyrkjusérfræðingur og stofnandi garðplöntustöðvarinnar Nátthaga í Ölfusi, sæmdur heiðursverðlaunum garðyrkjunnar.
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, afhenti Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar 2025 og þau hlaut fyrirtækið Livefood vegna framlags til umhverfisvænnar og sjálfbærrar matvælaframleiðslu.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar