„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
16. nóvember 2026
Ljósmyndir: Halldór Valberg, Móðurmál, EFÍ,
Stiklur úr dagbók forseta.

Skátaandi sveif yfir vötnunum á Bessastöðum þegar forsetamerkin voru afhent þar.





Hægt er að fræðast um forsetamerkishafa og lesa ávarp þeirra Smára og Svövu Drafnar á vef skátahreyfingarinnar.
Sjá nánar.
Forseti tók á móti rekkaskátum og þátttakendum á bókmenntahátíðinni Iceland Noir á Bessastöðum í liðinni viku. Einnig heimsótti hún tungumálaskóla Móðurmáls - samtaka um tvítyngi. Þar eru kennd yfir 20 móðurmál á hverjum laugardegi en um 900 börn sækja móðurmálskennslu á vegum samtakanna.
Forseti Íslands er verndari Skátahreyfingarinnar á Íslandi og afhendir forsetamerki ár hvert. Það er veitt rekkaskátum, 16-18 ára, sem hafa valið að vinna að merkinu samhliða starfi sínu í skátahreyfingunni. Um er að ræða tveggja til þriggja ára vegferð sem hvetur skátana til persónulegs vaxtar í gegnum tuttugu fjölbreytt verkefni. Að þessu sinni sæmdi forseti þrettán skáta forsetamerkinu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Einnig fluttu tvö úr hópi forsetamerkishafa, Smári Hannesson og Svava Dröfn Davíðsdóttir, stutta hugvekju.
Iceland Noir er alþjóðleg bókmenntahátíð sem rithöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir hafa staðið fyrir í Reykjavík frá árinu 2013. Forseti tók á móti þátttakendum og skipuleggjendum hátíðarinnar á Bessastöðum. Í hópi erlendra gesta að þessu sinni voru finnsk-eistneska skáldkonan Sofi Oksanen, breski spennusagnahöfundurinn James Dover Grant, sem skrifar undir höfundarnafninu Lee Child, og japanski myndasagnahöfundurinn Makoto Yukimura sem vann í tuttugu ár að myndasögu sem byggir á íslenskum fornbókmenntum. Forseti ávarpaði hópinn og minnti á að í sögu Bessastaða mætti finna efnivið í áhugaverðar spennusögur.
Móðurmál - samtök um tvítyngi hafa boðið upp á móðurmálskennslu fyrir fjöltyngd börn hérlendis frá árinu 1994. Starfið er styrkt af Reykjavíkurborg en sjálfboðaliðar sinna kennslunni og halda utan um starfsemina. Forseti heimsótti á laugardag þá tungumálahópa Móðurmáls sem hittast í Fellaskóla. Einnig átti hún fund með stjórn Móðurmáls og Helga Gíslasyni skólastjóra Fellaskóla. Heimsóknin var tímasett með hliðsjón af Degi íslenskrar tungu en rannsóknir hafa sýnt fram á að góð undirstaða í móðurmáli styður við annað tungumálanám.
Fleiri fréttir

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“

11. nóvember 2026
„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“
Íslensku menntaverðlaunin afhent á Bessastöðum.
11. nóvember 2026
„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“

7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“
Forsetahjón sækja 150 ára afmælishátíð Blönduóss.
7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“