Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
16. október 2026
Ljósmyndir: Pétur Fjeldsted.
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.

Forseti og Tristan Harris í samtali um þversagnir gervigreindar í Hörpu.


Hægt er að lesa grein forseta, „Human Judgement Is the Most Powerful Technology in the AI Age“, á vef tímaritsins TIME.
Lesa grein.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, birti grein í tímaritinu TIME undir titlinum „Human Judgement Is the Most Powerful Technology in the AI Age“ („Mannleg dómgreind er öflugasta tæknin á tímum gervigreindar“). Í greininni rifjar forseti upp leiðtogafundinn í Reykjavík fyrir fjörutíu árum og þann mikilvæga lærdóm að samtal, jafnvel milli andstæðinga, geti breytt gangi sögunnar. Hún tengir þennan lærdóm við áskoranir samtímans, þar sem kjarnorkuógn, átök og ör þróun gervigreindar kalla á ábyrga forystu og aukna samvinnu.
Forseti segir jafnframt frá viðburðum friðarvikunnar í Reykjavík 6.–12. október, þar sem ungt fólk, leiðtogar og sérfræðingar komu saman til að ræða framtíðina, frið og ábyrgð okkar gagnvart komandi kynslóðum. Meginboðskapur greinarinnar er að þótt tækninni fleygi fram megi mannleg dómgreind, ábyrgð og samviska aldrei víkja. Samtal, traust og hæfileikinn til að hlusta og vinna saman séu grundvallarforsendur friðar og framfara.
Forseti ræðir einnig samtal þeirra Nataša Pirc Musar forseti Slóveníu og Mary Robinson fyrrverandi forseti Írlands á friðarráðstefnunni Imagine Forum í Hörpu:
„Fjörutíu árum eftir að tveir valdamiklir menn funduðu í Reykjavík hittust þrjár konur — tvær þeirra forsetar og ein fyrrum forseti—til að halda samtalinu áfram. Ekki vegna þess að konur hafi öll svörin, því þau höfum við ekki, heldur vegna þess að framfarir krefjast þess að fleiri raddir fái að hljóma, fleiri sjónarmið komist að og við séum tilbúin til að hlusta hvert á annað, þrátt fyrir ólíkar skoðanir. Og einnig vegna þess að framtíðin má aldrei aðeins vera í höndum þeirra sem nú halda um valdataumana.”
Í niðurlagi greinarinnar segir forseti ennfremur:
„Við megum ekki leyfa vélum að leysa af mannlega dómgreind, ábyrgð eða samvisku. En vandinn er ekki tæknin ein og sér og hún getur heldur ekki veitt okkur öll svörin. Við þurfum líka að styrkja mannlega innviði samfélagsins: tengslin okkar á milli, stofnanirnar sem við treystum á, sameiginleg gildi og samstarfshefðir sem gera okkur kleift að takast á við sameiginlegar áskoranir. Það er ekki nóg að búa næstu kynslóð undir framtíðina með því að efla tæknilega getu hennar. Við verðum líka að rækta þá mannlegu þætti sem eru nauðsynlegir til að móta framtíðina: hæfileikann til að hlusta, spyrja gagnrýnna spurninga og sýna samkennd, hugreki og samstarfsvilja. Á tímum vitvélanna gætu þetta verið dýrmætustu hæfileikar okkar.“
Bandaríska fréttakonan Christiane Amanpour stjórnaði samtali þeirra Höllu Tómasdóttur, Nataša Pirc Musar og Mary Robinson á friðarráðstefnunni Imagine Forum 12. október. Hún birti í kjölfarið upptöku með hluta samtalsins á fréttavef CNN.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu