Gervigreind, sýndarheimar og samfélag
15. maí 2026
Ljósmyndir: Arnaldur Halldórsson.
Forseti ávarpar EVE Fanfest í Hörpu.

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations og Adrian Bolton frá Google DeepMind ásamt forseta á sviði Hörpu.

Forseti flutti ávarp á sérstökum viðburði á EVE Fanfest í Hörpu þar sem fjallað var um hvernig nota mætti gervigreind til að styðja við velsæld og sköpun. Að loknu ávarpinu hlýddi hún á samtal Hilmars Veigars Péturssonar forstjóra Fenris Creations (áður CCP) og Adrians Bolton hjá Google DeepMind. Fyrirtækin gerðu nýlega samkomulag um prófun DeepMind á gervigreindarlíkönum í sérhannaðri útgáfu tölvuleiksins EVE-Online sem Fenris Creation starfrækir.
Forseti lagði í máli sínu áherslu á að hröð þróun gervigreindar muni hafa djúpstæð og víðtæk áhrif á samfélag okkar. Hún sagði brýnt að fyrirtæki og samfélög stýrðu þeirri þróun af ábyrgð og fyrirhyggju. „Sýndarheimar eru ekki endilega flóttaleið frá hversdagsleikanum heldur endurspegla þeir raunheima og eru þar með kjörinn vettvangur til að kanna hvernig þróa megi gervigreind til góðs," sagði forseti í meðal annars og bætti seinna við:
„Við erum lítið land, en við höfum lengi sýnt að sköpunargáfa, forvitni og mannleg tengsl geta haft hnattræn áhrif. Á tímum hraðra tæknibreytinga skipta þessi gildi meira máli en nokkru sinni fyrr. Því að framtíðin verður ekki mótuð af tækninni einni saman. Mennskan, hugrekki, skynsemi og sköpunarkraftur verða að liggja til grundvallar".
EVE Fanfest er árlegur viðburður sem fer fram í Reykjavík. Þar koma saman notendur EVE Online frá ýmsum heimshornum til að blanda geði og hlýða á umræður og fyrirlestra.
Fleiri fréttir

11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna
Forseti veitti verðlaun í barnaflokki.
11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna

9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“
Forseti sækir fund ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs.
9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“

8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“
Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ í Genf.
8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“