„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“
8. júlí 2026
Ljósmynd: Vefur SÞ.
Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ í Genf.

Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ um stefnumótun á sviði gervigreindar.
Upptaka af ávarpi forseta á ráðstefnunni í Genf er aðgengilegt á vef SÞ.
Skoða
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, ávarpaði í gær ráðstefnu um opinbera stefnumótun á sviði gervigreindar (Global Dialogue on AI Governance) sem fram fer í Sviss. Ráðstefnan, sem skipulögð er af Sameinuðu þjóðunum (SÞ), hófst á mánudag og er hluti af Stafrænni viku í borginni Genf. Meðal fjölda annarra sem tóku til máls á ráðstefnunni voru António Guterres, aðalframkvæmdastjóri SÞ, og Alar Karis, forseti Eistlands.
Í ávarpi sínu lagði forseti Íslands áherslu á að gervigreind fylgdu bæði tækifæri og hættur. „Gervigreind getur orðið eitt öflugasta tæki okkar til að bæta heilsu, menntun, fæðuöryggi og viðbrögð okkar við umhverfisáskorunum. En áhrif hennar ráðast ekki af tækninni einni saman. Þau ráðast af þeim ákvörðunum sem við tökum varðandi vald, aðgang, ábyrgð. Og þegar öllu er á botninn hvolft er spurningin: Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“ sagði forseti meðal annars.
Síðar í dag ávarpar forseti Heimsþing um gervigreind til góðs (The AI for Good Global Summit) sem haldið er á vegum Alþjóðafjarskiptasambandsins ITU í samstarfi við SÞ. Á þinginu hittast í fyrsta sinn fulltrúar í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind (AI for Good Global Commission) sem SÞ hefur haft forystu um að koma á fót. Forseti hefur þegið boð um að sitja í nefndinni en meðal annarra stofnfélaga eru Paul Kagame, forseti Rúanda, Alar Karis, forseti Eistlands, og leiðtogar úr atvinnulífi, alþjóðastofnunum og vísindasamfélaginu.
Fleiri fréttir

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“

2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.
2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“