„Getum við lært að vera ósammála fallega?“
14. september 2026
Ljósmyndir: EFÍ.
Forseti fundar með skólastjórnendum og nemendum framhaldsskóla og háskóla.

Tæplega 40 framhaldsskóla- og háskólanemar sóttu Bessastaði heim á föstudag.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, var á laugardag í viðtali á Bylgjunni þar sem hún ræddi meðal annars um verkefnið Samtal.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, efndi til tveggja funda með stjórnendum íslenskra framhaldsskóla og fulltrúum framhalds- og háskólaskólanema í lok liðinnar viku. Efni fundanna var verkefnið Samtal sem áformað er að efna til í október í tengslum við 40 ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða árið 1986.
Verkefnið Samtal hefur verið í mótun frá því á vordögum en það byggir á hugmyndum sem Halla Tómasdóttir ræddi í aðdraganda forsetakosninga vorið 2024. Formlegur undirbúningur hófst með samtali á Bessastöðum 22. maí síðastliðinn. Þar hittust fulltrúar samtaka og hreyfinga, framhaldsskóla- og háskólanema og fólk með reynslu af skipulagningu stórra funda.
Fyrir hádegi á föstudag átti forseti fyrst fjarfund með skólastjórnendunum en síðdegis fylltust Bessastaðir af forystufólki í nemendafélögum á framhalds og háskólastigi. Einnig tók hluti hópsins þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Efni beggja funda var skipulag og inntak Samtals sem áformað er að fari fram í framhaldsskólum um allt land laugardaginn 10. október. Er gert ráð fyrir að ungmenni leiði þar samtöl fólks á ólíkum aldri um áskoranir samtíðarinnar og um framtíðina.
Að loknum fundunum á föstudag sagðist forseti vera full bjartsýni á verkefnið: „Kannski lýsir það kraftinum best að einn ungur maður sagði á leiðinni út af Bessastöðum: „Við erum að fara að breyta heiminum.““ Forseti sagði ennfremur: „Ég hef mikla trú á samtalinu og unga fólkinu og tek undir með einum skólastjóra sem spurði: „Getum við lært að vera ósammála fallega?“ og öðrum sem sagði réttilega: „Við getum gert betur.““
Fleiri fréttir

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar