Gleðiganga Hinsegin daga
10. ágúst 2024
Forseti flytur hátíðarræðu við lok Gleðigöngunnar.

Forseti flytur hátíðarræðu við lok Gleðigöngunnar á Hinsegin dögum í Hljómskálagarðinum Reykjavík. Ljósmynd/Sunna Ben






Forseti flytur hátíðarræðu við lok Gleðigöngunnar á Hinsegin dögum í Reykjavík. Efnt var til útihátíðar í Hljómskálagarðinum við lok gleðigöngunnar þar sem forseti ávarpaði samkomuna af stóra sviðinu. Slagorð Hinsegin daga er „Stolt er styrkur" og í ræðu sinni sagðist forseti sjaldan vera stoltari af íslenskri þjóð en þegar tækifæri gæfist til að segja sögu hinsegin fólks utan landsteinanna.
„Staðan í heimsmálunum er snúin. Mannréttindi eiga undir högg að sækja. Við þurfum á eldhugum og baráttujöxlum að halda. Og það er mín einlæga trú að við þurfum í þeirri baráttu að tileinka okkur hætti hinsegin baráttunnar á Íslandi. Að velja mýkt í hörðum heimi. Að fagna því sem er ólíkt með okkur," sagði forseti meðal annars í hátíðarræðunni, sem lesa má í fullri lengd hér og í enskri þýðingu hér.
Þetta er í annað sinn sem forseti Íslands ávarpar Gleðigönguna í Reykjavík. Hið fyrra var á Hinsegin dögum árið 2016 og var það jafnframt í fyrsta sinn á heimsvísu sem þjóðhöfðingi tók opinberlega þátt í hátíð hinsegin fólks.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar