Nýr aðstoðarmaður forseta
17. mars 2026
Ljósmynd: Maiken Arnesen.
Guðrún Dögg Guðmundsdóttir ráðin í tímabundið starf.

Guðrún Dögg Guðmundsdóttir hefur verið ráðin tímabundið sem aðstoðarmaður forseta. Guðrún tekur til starfa að fullu í sumar og er ráðning hennar tímabundin. Stöðugildinu er ætlað að koma í stað sérstaks ráðgjafa sem lét af störfum á síðasta ári.
Guðrún er með BA próf í rússnesku og viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í þjóðarétti frá Friðarháskóla Sameinuðu þjóðanna í Kosta Ríka. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði alþjóðamála, stjórnsýslu, mannréttinda og verkefnastjórnunar. Á liðnum árum hefur hún starfað sem sérfræðingur hjá Uppbyggingarsjóði EES, sem forstöðumaður Evrópuskrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga og sem framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Fleiri fréttir

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar