Grænvangur
18. febrúar 2025
Forseti heimsækir Grænvang.




Forseti heimsækir skrifstofu Grænvangs í Grósku í Reykjavík, kynnir sér starfsemina þar og helstu verkefni vettvangsins bæði innanlands og erlendis. Þá var rætt um framtíðarsýn í grænum lausnum og um verndarahlutverk forseta.
Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Markmiðið er að styðja við vegferð Íslands í loftslagsmálum og sýna fram á hvernig íslenskt hugvit og lausnir geta stutt við loftslagsvegferðina á heimsvísu. Forseti Íslands hefur tekið að sér að gerast verndari Grænvangs og var tilkynnt um það á dansk-íslensku viðskiptaþingi í ríkisheimsókn forseta til Danmerkur haustið 2024, en Grænvangur er stofnaður að danskri fyrirmynd.
Sigurður Hannesson, formaður Grænvangs, Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, og Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, tóku á móti forseta í Grósku. Fundinn sátu einnig Hans Orri Kristjánsson, verkefnastjóri innlends samstarfs, og Viktoría Alfreðsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar