Gullkistan Vestfirðir
6. september 2025
Forseti sækir Ísafjörð og Flateyri heim.




Forseti varði deginum á Ísafirði og Flateyri. Fyrir hádegi átti hún fund með bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, Sigríði Júlíu Brynleifsdóttur, og heimsóttu þær síðan íþróttafélagið Vestra. Lið meistaraflokks karla hjá Vestra leikur í Bestu deildinni og vann nýverið bikarkeppnina í knattspyrnu.
Um hádegisbil opnaði forseti sýninguna Gullkistan Vestfirðir í íþróttahúsinu Torfnesi og flutti ávarp. Sýningin varpaði ljósi á hvað Vestfirðir hafa upp á að bjóða í atvinnulífi og menningu og kynntu hátt í 80 fyrirtæki og stofnanir þar starfsemi sína.
Eftir hádegi fór forseti til Flateyrar og flutti þar ávarp við setningu Lýðskólans á Flateyri. Skólinn er að hefja sitt áttunda starfsár og eru nemendur í ár tuttugu talsins. Einnig heimsótti forseti vinnustofu myndlistarkonunnar Jean Larson. Larson hefur m.a. málað tólf vegglistaverk af íslenskum fuglum á húsveggi bygginga á Flateyri undir heitinu Flatbirds.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar