Gulur september
1. september 2024
Forseti flytur ávarp um geðrækt og sjálfvígsforvarnir.

Forseti við setningu átaksins Gulur september í ráðhúsi Reykjavíkur. Ljósmynd /Pétur Fjelsted




Forseti flytur ávarp við setningu Guls september, samvinnuverkefnis stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Átakið var í fyrsta skipti haldið árið 2023 með þeim hætti að tileinka heilan mánuð vitundarvakningu um málefnið. Haustið er valið fyrir átakið vegna þess að Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september og Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október. Einkunnarorð átaksins í ár eru kærleikur, aðgát og umhyggja.
Í ávarpi sínu ræddi forseti um andlega líðan í samfélaginu og sagði að þörf væri á þjóðarátaki. Aukin vanlíðan, einmanaleiki, ofbeldi og fíkn væru meðal brýnustu verkefna samtímans sem samfélagið þurfi að leysa saman. Þá benti forseti á að á Íslandi láti að meðaltali 39 einstaklingar lífið í sjálfsvígum á hverju ári og Íslands sé í 4. sæti af 41 þjóð á lista UNICEF þegar kemur að tíðni sjálfsvíga ungmenna. „Þetta eru stóru, erfiðu málin í öllum samfélögum. Hlutverk okkar er að knýja fram svör við því hvernig við snúum þessari þróun við. Ykkar framlag, kæru vinir, í þá veru er ómetanlegt."
Ávarp forseta má lesa í heild sinni hér.
Að verkefninu Gulur september standa Embætti landlæknis, Geðhjálp, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Minningarsjóður Orra Ómarssonar, Píeta samtökin, Rauði krossinn á Íslandi, SÁÁ, Sorgarmiðstöð, Þjóðkirkjan og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“