„Hæfni ykkar er framtíðarhæfni“
7. febrúar 2026
Rut og Silja
Forseti tekur þátt í nýsveinahátíð IMFR

Forseti, Halldór Þ. Haraldsson formaður IMFR og Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í hópi nýsveina. Ljósmyndir Rutar og Silju.


Forseti flutti ávarp og veitti viðurkenningar á árlegri Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík sem fram fór á Hótel Natura. Þetta er í 20. skipti sem hátíðin fer fram og hefur forseti frá upphafi verið verndari hennar.
Á hátíðinni var 33 nýsveinum veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi á liðnu ári. Heiðursiðnaðarmenn félagsins 2026 eru þau Kristín Magnúsdóttir blómaskreytir og Tómas Bergþór Þorbjörnsson húsgagnasmiður. Þau fengu viðurkenningu fyrir vel unnin störf og vinnu við framgang iðnar og menntunar á sínum sviðum.
Í ávarpi sínu á Nýsveinahátíðinni ræddi forseti meðal annars um þær áskoranir sem gervigreind hefur í för með sér á vinnumarkaði. Um það efni sagði hún meðal annars:
„En það er mikilvægt að muna að þótt gervigreind sé fær um margt þá getur hún ekki allt. Hún getur ekki brett upp ermar og mætt á svæðið, metið aðstæður með eigin augum eða brugðist við óvæntum vandamálum. Og það er henni líklega ofviða að „kippa einhverju í liðinn“ þegar allt er í hnút og þörf er á reynslu, skynsemi og góðum skammti af íslenskri útsjónarsemi. Gervigreindin getur heldur ekki lofað að „fínpússa þetta í fyrramálið“ og staðið við það. Hæfni ykkar er því ekki aðeins gagnleg — hún er framtíðarhæfni. Hún byggir á mannlegri þekkingu, lipurð, ábyrgð og fagmennsku sem verða sífellt verðmætari í heimi sjálfvirkni og skjágláps.“
Unnt er að lesa ávarpið í heild sinni á hér á vef embættisins.
Fleiri fréttir

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs

27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.
27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings

25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk
Forseti tekur á móti fulltrúum Barnaheilla.
25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk