Hafið
9. maí 2025
Forseti flytur ávarp á Íslandsfrumsýningu heimildarmyndar.

Forseti flytur ávarp á Íslandsfrumsýningu heimildamyndarinnar Ocean, eða Hafið, með David Attenborough. Myndin var frumsýnd á heimsvísu degi fyrr, þann 8. maí, á 99 ára afmæli náttúrufræðingsins og sjónvarpsmannsins David Attenborough, sem fer með hlutverk sögumanns. Í Hafinu beinir Attenborough sjónum að botnfiskveiðum og afleiðingum þeirra fyrir vistkerfi hafsins.
Íslandsfrumsýningin, sem fram fór í Smárabíó, var á vegum Icelandic Wildlife Fund, Landverndar, Náttúruverndarsamtaka, Hvalavina-Stop whaling in Iceland og NASF. Leikstjóri myndarinnar, Toby Nowlan, leikstjóri myndarinnar, var viðstaddur.
Í ávarpi sínu að sýningu lokinni tók forseti undir skilaboð myndarinnar og sagði Ísland vera í kjörinni stöðu til þess að sýna gott fordæmi í verndun hafsvæða.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar