Halla Tómasdóttir sett í embætti forseta
1. ágúst 2024
Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, á svölum Alþingis.






Halla Tómasdóttir sver drengskapareið að stjórnarskránni og er sett í embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu. Embættistakan hófst með helgistund í Dómkirkjunni en að henni lokinni var gengið til athafnar í Alþingishúsinu. Þar lýsti formaður landskjörstjórnar, Kristín Edwald, forsetakjöri áður en drengskaparheit var unnið. Að því loknu gekk forseti fram á svalir Alþingishússins og minntist fósturjarðarinnar. Almenningur var boðinn velkominn á Austurvöll til að fylgjast með athöfninni og fagna nýjum forseta. Í fyrsta sinn voru þar settir upp skjáir svo viðstödd gætu fylgst með athöfninni en hún var jafnframt sýnd í beinni útsendingu á RÚV og má sjá upptöku athafnarinnar hér.
Ávarp forseta má nálgast hér.
Í tilefni embættistökunar var forseti í viðtali við Ríkissjónvarpið sem sjá má hér.
Myndasafn frá innsetningu Höllu Tómasdóttur.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar