Handritasýningin
1. desember 2024
Forsetahjón heimsækja Eddu á fullveldisdaginn.

Forsetahjón skoða handritasýninguna í Eddu. Ljósmynd: Sigurður Stefán Jónsson






Forsetahjón heimsækja handritasýninguna Heimur í orðum á fullveldisdaginn, 1. desember. Sýningin var opnuð í Eddu, húsi íslenskunnar, á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Þar gefst almenningi kostur á að sjá íslensku handritin sem geyma ómetanlegan menningararf þjóðarinnar.
Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, og Sigrún Kristjánsdóttir sýningarstjóri tóku á móti forsetahjónum og fræddu þau um handritin og framsetningu þeirra á sýningunni.
Meðal handrita á sýningunni eru frægustu íslensku miðaldahandritin, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók. Áhersla er lögð á ríkulegt innihald handritanna, bæði texta og myndir, þar sem líf, dauði, tilfinningar og trú, völd og heiður koma við sögu. Fjallað er um erlend áhrif á íslenska menningu á miðöldum og um íslenska tungu en einnig hvaða spor íslenskar fornbókmenntir hafa markað í útlöndum.
Sjá pistil forseta: Heimur í orðum.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar