Hátíðarávarp á Hólahátíð
17. ágúst 2025
Forseti ræðir um líðan barna og ungs fólks.



Forseti var gestur á Hólahátíð sem Hólafélagið stendur fyrir um miðjan ágúst ár hvert. Hátíðin hófst með dagskrá fyrir börn á laugardag en á sunnudag var guðsþjónusta í Hóladómkirkju, þar sem séra Gísli Gunnarsson predikaði. Í kjölfarið var hátíðardagskrá þar sem forseti flutti ávarp. Hún beindi athygli að neikvæðum áhrifum snjalltækja og samfélagsmiðla á líðan barna og ungs fólks og sagði meðal annars: “Má ekki líta svo á að æskufólk sé nánast í fullu starfi í rafheimum meðfram skólagöngunni og að það sem þau sjá og gera á stafrænum vettvangi útskýri að einhverju marki aukinn kvíða, þunglyndi og vanlíðan? Ég tel að svo sé.“ Við sama tækifæri fluttu Dagmar Helga Helgadóttir og Valgerður Rakel Rúnarsdóttir, nemendur við unglingadeild Grunnskólans á Hofsósi, lag sitt og GDRN „Riddari kærleikans“. Að dagskrá lokinni snæddu forsetahjón kvöldverð að Hólum.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar