Hátíðarhöld í Stokkhólmi
1. maí 2026
Ljósmyndir: © Clément Morin/Kungl. Hovstaterna og © Linda Broström/Kungl. Hovstaterna (hópmynd).
Forsetahjón gestir í afmælisfagnaði Karls XVI. Gústavs Svíakonungs.

Forsetahjón, við hlið finnsku forsetahjónanna, í guðþjónustu í hallarkirkjunni.




Ítarlegri umfjöllun um hátíðarhöldin í Stokkhólmi, ásamt fleiri ljósmyndum, er á vef sænsku hirðarinnar.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og maki hennar, Björn Skúlason, tóku í gær þátt í hátíðarhöldum í Stokkhólmi í tilefni af 80 ára afmæli Karls XVI Gústafs Svíakonungs.
Þau sóttu meðal annars guðþjónustu í hallarkirkjunni, þáðu hádegisverð í ráðhúsi Stokkhólms í boði borgarráðs og sátu hátíðarkvöldverð í konungshöllinni. Forseta gafst gott tækifæri til að rækta tengsl við forystufólk hinna Norðurlandanna.
Forsetahjón eru væntanleg aftur til Íslands seinna í dag.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“