Heiðursverðlaun Ásusjóðs
13. febrúar 2025
Forseti afhendir vísinda- og frumkvöðlaverðlaun.

Forseti afhendir heiðursverðlaun Verðlaunasjóðs Ásu Guðmundsdóttur Wright. Jón Atli Benediktsson, rektor og prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands, og Guðmundur Fertram Sigurjónsson, frumkvöðull og stofnandi heilbrigðistæknifyrirtækisins Kerecis, hlutu verðlaunin, sem veitt voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í fyrsta sinn.
Verðlaun úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright eru veitt íslenskum vísindamanni sem náð hefur framúrskarandi árangri á sínu sérsviði í vísindum eða fræðum og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku þjóðfélagi. Til að leggja áherslu á tengsl vísinda og nýsköpunar og mikilvægi þeirra fyrir íslenskt samfélag eru nú í fyrsta sinn veitt verðlaun til frumkvöðuls sem hefur náð framúrskarandi árangri í nýsköpun.
Nánar má lesa um verðlaunahafana hér.
Ása Guðmundsdóttir Wright stofnaði Verðlaunasjóð Ásu Guðmundsdóttur Wright árið 1968 í tengslum við hálfrar aldar afmæli Vísindafélags Íslendinga. Sjóðurinn hefur frá upphafi veitt heiðursverðlaun til 56 einstaklinga sem unnið hafa veigamikil vísindalegt afrek á Íslandi eða fyrir Íslands hönd. Áfram er haldið í þá hefð að verðlauna fyrir afrek á sviði vísinda en einnig er nú verðlaunað fyrir afrek á sviði nýsköpunar. Þau sem hlotið hafa verðlaun úr sjóðnum hafa verið kallaðir Æsir eða Ásynjur.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar