„Heilbrigð sál í hraustum líkama“
28. febrúar 2026
Ljósmynd: Magnús Magnússon
Forseti vígir íþróttamiðstöð í Búðardal.

Forseti vígði glæsilega íþróttamiðstöð í Búðardal að viðstöddu fjölmenni. Í miðstöðinni eru íþróttasalur, líkamsræktaraðstaða, sundlaug, gufubað og heitir pottar. Engin slík mannvirki voru fyrir í Búðardal. Í ávarpi sínu á vígsluathöfninni sagði forseti meðal annars:
„Hið klassíska máltæki „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ er oftast túlkað sem lýsing á einstaklingi en það má vel yfirfæra það á smærri og stærri samfélög og jafnvel heilar þjóðir. Íþróttamiðstöðin í Búðardal mun þjóna hlutverki sínu á komandi áratugum og leggja grunn að líkamlegri og andlegri heilsu hér í Dalabyggð í framtíðinni. Dalirnir hafa lengi heillað og þeir munu heilla heimafólk og gesti enn frekar eftir þennan góða vígsludag.“
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar