Heilbrigt Ísland
19. janúar 2026
Sigríður Björnsdóttir
Forseti tekur þátt í samtali á Læknadögum.

Forseti, Steinunn Þórðardóttir og Bogi Ágústsson í samtali við opnun Læknadaga. Ljósmynd: Sigríður Björnsdóttir.
Forseti Íslands tók þátt í sófaspjalli um heilbrigðismál við opnun Læknadaga í Hörpu. Aðrir þátttakendur í samtalinu voru Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Bogi Ágústsson fyrrum fréttamaður á RÚV. Þau ræddu meðal annars um áskoranir í geðheilbrigðisþjónustu, málefni aldraðra, gildi forvarna og mikilvægi almennrar lýðheilsu. Forseti gat þess að mörg þeirra verkefna sem hún og maki hennar hefðu lagt áherslu á síðan hún tók við embætti mætti tengja slagorðinu: „Heilbrigt Ísland“.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“