Heillaóskir til Bandaríkjanna
20. janúar 2025
Forseti sendir Donald Trump heillaóskir.

Forseti sendir Donald Trump heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni vegna innsetningar hans í embætti forseta Bandaríkjanna. Trump var kjörinn forseti í annað sinn í kosningum þann 5. nóvember 2024 og fer embættistakan fram í dag, mánudaginn 20. janúar.
Í bréfinu fagnar forseti farsælu stjórnmálasambandi ríkjanna um áratuga skeið og áréttar að sem stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu deili Ísland og Bandaríkin bæði sameiginlegum gildum og hagsmunum. „Við Íslendingar metum mikils vináttu okkar við Bandaríkjamenn og sívaxandi gagnkvæm tengsl, meðal annars á sviði viðskipta, menntunar, menningar og ferðaþjónustu,“ segir í bréfinu.
Forseti vekur máls á því að Ísland njóti þeirrar gæfu að teljast friðsælasta land heims og vilji beita sínum áhrifum til góðra verka. Þá minnist forseti leiðtogafundarins í Höfða, þegar Ísland varð vettvangur sögulegra viðræðna milli Ronalds Reagan og Mikaíls Gorbatsjov í tilraun þeirra til að binda enda á kalda stríðið. Enn sé ákall eftir friði í heiminum og nú sem fyrr þurfi til þess alþjóðlega skuldbindingu. Sjálf sé hún ævinlega reiðubúin að styðja við einlæga viðleitni til að stuðla að friði og réttlæti.
Að lokum segist forseti hlakka til áframhaldandi farsæls samstarfs milli þjóðanna og óskar Donald Trump velfarnaðar í embætti sem forseti Bandaríkjanna.
Fréttatilkynning.
Fleiri fréttir

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“