Heillaóskir til Kína
27. september 2024
Forseti sendir kveðju til forseta Kína.

Bessastaðir. Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurðsson.
Forseti sendir Xi Jinping, forseta Kína, kveðju fyrir hönd íslensku þjóðarinnar í tilefni af 75 ára afmæli kínverska alþýðulýðveldisins á þjóðhátíðardegi þeirra þann 1. október. Í bréfinu segir forseti það ánægjulegt hve gjöful tengsl íslensku og kínversku þjóðarinnar hafi verið. Þá áréttaði hún að þrátt fyrir fjarlægðina heimshorna á milli og stærðarmun þjóðanna þá deili Kína og Ísland sameiginlegum hagsmunum og áskorunum með mannkyni öllu.
Í sama bréfi þakkaði forseti einnig fyrir árnaðaróskir sem Xi Jinping sendi í tilefni embættistöku hennar þann 1. ágúst.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar