Heillaóskir til páfa
18. maí 2025
Forseti sendir nýjum páfa heillaóskir.

Forseti sendir nýjum páfa, Leó fjórtánda, heillaóskir við embættistöku hans í Páfagarði. Robert Francis Prevost var kjörinn páfi þann 8. maí og tók sér páfanafnið Leó XIV. Innsetningarathöfn hans fór fram með messu á Péturstorginu í Páfagarði sunnudaginn 18. maí.
Í bréfi sínu segir forseti að þótt íslenska þjóðkirkjan sé evangeliskt lúterskt trúfélag þá sé kaþólska kirkjan nú annar stærsti söfnuður landsins. Íslendingar séu friðsöm þjóð sem fagni áherslum páfa á friðarboðskap öllum til handa. „Rétt eins og þú þráum við frið á jörðu í hjörtum okkar," segir meðal annars í bréfi forseta.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar