„Heillaspor í baráttunni gegn krabbameini“
9. maí 2026
Ljósmyndir: Krabbameinsfélag Íslands.
Forseti ávarpar aðalfund Krabbameinsfélags Íslands sem fagnar 75 ára afmæli.

„Verkefnið er að breyta ótta í þekkingu, einmanaleika í samstöðu, og óvissu í von,“ sagði forseti í ávarpi sínu.

Forseti setti aðalfund Krabbameinsfélags Íslands sem fagnar 75 ára afmæli í ár. „Með stofnun krabbameinsfélaganna voru stigin dýrmæt heillaspor í baráttu landsmanna gegn einum af mannskæðustu sjúkdómum heimsbyggðarinnar. “ sagði forseti í opnunarávarpi sínu.
Krabbameinsfélag Íslands hefur gegnt mikilvægu hlutverki hérlendis í fræðslu, forvörnum, skimun og stuðningi við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra. Aðildarfélögin eru nú 27 og spanna breitt svið, allt frá svæðisbundnum félögum til sérhæfðra stuðningsfélaga. „Starfsemin ber skýrt vitni um eitt af því sem mér þykir hvað vænst um í fari okkar Íslendinga: samtakamáttinn – viljann til að standa saman og láta gott af sér leiða,“ sagði forseti meðal annars í ávarpi sínu. Hún bætti síðar við:
„Baráttan við krabbamein er bæði líkamleg og andleg og í umönnun sjúklinga og aðstandenda þurfa læknavísindin og kærleikurinn að haldast í hendur. Þekking, mannleg snerting og hugrekki eru ekki aukaatriði heldur hluti af meðferðinni og batahorfunum. Og þarna liggur einn kjarninn í starfi Krabbameinsfélagsins, og fjölmargra annarra almannaheillasamtaka. Verkefnið er að breyta ótta í þekkingu, einmanaleika í samstöðu, og óvissu í von.“
Fleiri fréttir

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar