Heimboð til Noregs og Svíþjóðar
19. mars 2025
Forseti þiggur boð frá Noregskonungi og Svíakonungi.

Forseti Íslands hefur þegið boð um ríkisheimsóknir til Noregs og Svíþjóðar í vor. Markmið beggja heimsókna er að styrkja enn frekar söguleg tengsl þjóðanna og vinna að sameiginlegum hagsmunum. Hefð er fyrir því að norrænir þjóðhöfðingjar fari sínar fyrstu ríkisheimsóknir eftir embættistöku milli Norðurlanda enda náið samstarf meðal þjóðanna.
Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning bjóða forsetahjónum til heimsóknar dagana 8.–10. apríl og verður farið bæði til Óslóar og til Þrándheims, en Hákon krónprins fylgir forsetahjónum þangað. Í Noregi verður horft til sameiginlegrar menningarsögu þjóðanna með áherslu á bókmenntir. Auk þess verða skoðuð tækifæri til aukins samstarfs bæði í græna hagkerfinu og bláa hagkerfinu, þ.e. á sviði orkumála og sjávarútvegs. Öryggis- og varnarmál verða til umræðu en einnig verður lögð áhersla á leiðir til að stuðla að bættri andlegri heilsu í samfélaginu.
Karl XVI. Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning bjóða forsetahjónum til Stokkhólms dagana 6.–8. maí. Í heimsókninni verða meðal annars skoðuð tækifæri til frekara samstarfs á sviði líftækni og heilbrigðisþjónustu. Þá verður litið til þess að dýpka samskipti Íslands og Svíþjóðar á sviði skapandi greina með áherslu á sjónvarps- og kvikmyndagerð. Öryggis- og varnarmál verða einnig til umræðu, einkum með hliðsjón af nýlegri aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu og viðnámsþoli þjóðanna andspænis fjölþáttaógnum.
Forsetahjónum fylgir opinber sendinefnd en auk þess verða með í för viðskiptasendinefndir á vegum Íslandsstofu. Nánar verður greint frá dagskrá heimsóknanna þegar nær dregur.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“