„Hlutverk safnafólks er að fá hjörtu okkar til að slá í takt“
18. maí 2026
Ljósmyndir: Kristín Pétursdóttir.
Forseti afhendir Íslensku safnaverðlaunin.

Forseti ásamt fulltrúum þeirra stofnana sem tilnefndar voru til Íslensku safnaverðlaunanna 2026.

Unnt er að fræðast um verkefnin sem tilnefnd voru til Íslensku safnaverðlaunanna á vef Íslandsdeildar ICOM.
Skoða nánar
Forseti afhenti Íslensku safnaverðlaunin 2026 við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum. Verðlaunin hlaut Listasafn Íslands fyrir að hafa lagt sitt af mörkum í baráttunni gegn listaverkafölsunum hér á landi, meðal annars með sýningunni „Ráðgátan um rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir“.
Íslensku safnaverðlaunin eru veitt annað hvert ár. Er þeim ætlað að vekja athygli á því sem vel er gert á íslenskum söfnum, efla faglegan metnað og vera safnafólki hvatning til að kynna menningu þjóðarinnar á framsækinn og áhugaverðan hátt. Að verðlaununum standa Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnafólks.
Fimm stofnanir voru tilnefndar að þessu sinni: Listasafn Íslands, Minjasafn Austurlands, Tækniminjasafn Austurlands, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Árnastofnun. Í ávarpi sínu sagði forseti tilnefningarnar endurspegla vel þá fjölbreytni og grósku sem einkenndi safnastarf um land allt. „Oft er talað um forsetaembættið sem sameiningartákn þjóðarinnar. Sjálf lít ég svo á að eitt mikilvægasta hlutverk safnafólks sé að fá hjörtu okkar til að slá í takt - að minna á að við sem höfum Ísland sem heimahöfn eigum miklu fleira sameiginlegt en það sem skilur okkur að.“
Forseti sagði ennfremur: „Á tímum upplýsingaóreiðu, gervigreindar og sífellt flóknari veruleika þurfum við á vönduðum stofnunum að halda sem gera okkur kleift að greina á milli þess sem er ósvikið og falsað, hjálpa okkur við að gera greinarmun á hávaða og merkingu. Íslensk söfn njóta bæði virðingar og trausts innan samfélagsins. Svo er ykkur fyrir að þakka. Ég óska ykkur öllum, sem voruð tilnefnd að þessu sinni, hjartanlega til hamingju. Listasafn Íslands fær sérstakar hamingjuóskir og um leið vil ég, fyrir hönd forsetaembættisins, þakka safninu fyrir ánægjulegt og gjöfult samstarf um langt árabil.“
Fleiri fréttir

15. maí 2026
Gervigreind, sýndarheimar og samfélag
Forseti ávarpar EVE Fanfest í Hörpu.
15. maí 2026
Gervigreind, sýndarheimar og samfélag

13. maí 2026
Nýr sendiherra Perú
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Rolando Ruiz Rosas Cateriano.
13. maí 2026
Nýr sendiherra Perú

13. maí 2026
Nýr sendiherra Serbíu
Forseti tekur við trúnaðarbréfi fr. Jasmina Mitrović Marić.
13. maí 2026
Nýr sendiherra Serbíu